í einfeldni minni
langar mig að smakka
bragða á losta þínum

í margfeldni minni
langar mig að narta
smakka á ávexti þínum

í sjálfu sér
er ég dýrvitlaus
einmitt í þig