Áhorfendur í miðju laginu klöppuðu
- djassistarnir höfuðu af stakri snilli
ístaðs, hlustar og kuðungs hylli
unnið, og með hljómum fram löðuðu

töfrana úr hljóðfærum sínum
sem flaumur meðal gestanna flæddi
þar sem gítarinn áfram æddi
yfir taktföstum trommuslætti og litríkum orgelniðnum.

- Laurent/Keats

(Ort á heitu fimmtudagskvöldi í gær í Deiglunni, á tónleikum hjá B3 jassorgeltríóinu)