(11.'98)

Þú kallar hið lélega sæmilegt,
og heldur að þú sért sloppinn;
þar til þú sérð hið sæmilega birtast,
og í samkvæmni þinni neyðist
til að kalla hið sæmilega gott.

Smátt og smátt rýrirðu gildi
eigin orða, - orðanna verðbólga
- þar til að lokum þau þýða ekki neitt…