Hvirfilvindur

Eins og hvirfilvindur
þú komst
og ég komst ekki neitt.

Eins og hvirvilvindur
þeyttir mér ótal hringi
um miðju þína.

Eins og hvirfilvindur
hring eftir hring
og ég komst ekki inn.

Eins og hvirfilvindur
kastaðir mér
aftur inn í kyrran hversdagsleikann

Eins og hvirfilvindur
hvarfstu,
kysstir mig ekki bless.

Eins og hvirfilvindur
snýst hugur minn
enn um miðjuna þína.
Gberg