6.1.'99

Þessi dropi hefur fallið áður.
Í gær, í fyrradag, eða daginn þar áður
- í fyrra féll hann sem snjókorn
sem bráðnaði á vörum þínum.

Og fyrir tvö þúsund árum
féll hann á lík manns sem dáður
var af fjöldanum.
En öll deyjum við - á endanum.

Og þú, þar sem þú hylur andlit þitt aftur …
- þú hefur grátið þessu tári áður.