TÆKNILEGA SÉÐ…

Tæknilega séð búum við öll í fortíðinni
Því það líður eitt nanósekúndubrot
Úr nanósekúndubroti
Úr nanósekúndubroti milli þess
Að hlutirnir gerist kringum okkur
Og þess að við skynjum þá

Fortíðin er það eina sem við eigum
Því nú-ið er alltaf nýliðið

Og framtíðin?
Tja, er hægt að eiga það
Sem verður bara
En er aldrei?