Ég sé hvernig veðrið
þyngist og þyngist,
hvernig nóttin
dökknar og dökknar,
á meðan himininn
grætur og grætur.

Þungar eru þær dimmu nætur,
er hjartað ei lengur fer á fætur.

Ég finn hverning hugurinn
þyngist og þyngist,
hvernig sálin
dökknar og dökknar,
á meðan hjartað
grætur og grætur.

Já, Þungar eru þær dimmu nætur,
er hjartað ei lengur fer á fætur.
G