er ég lít í augu þín
vildi ég helst
borða þau

er ég snerti varir þínar
langar mig mest
að kyssa þig

er ég pikka í kinnar þínar
ljúft með gaflinum
vætast kverkarnar

er ég tygg tungu þína
minnist ég sumarsins
með söknuði