snjórinn féll eins og frosið vatn
niður á hann
sem lét snjóinn falla á sig
eins og frosið vatn

hann horfði á tunglið
í sitt hinsta sinn
og tunglið skein á hann
líkt og það væri hans hinsta sinn

hann brosti við köldum örlögum sínum
er hann fann lífið fjara smám saman út
og lífið brosti við köldum örlögum hans
fjarandi smám saman út

eggvopnið lá blóðugt við hlið hans
og notandinn löngu farinn
skiljandi eggvopnið blóðugt við hlið hans
löngu farinn

snjórinn féll eins og frosið vatn
niður á hann
hann horfði á tunglið
í sitt hinsta sinn
og brosti við köldum örlögum sínum
er hann fann lífið fjara smám saman út
á meðan eggvopnið lá blóðugt við hlið hans
var notandinn löngu farinn