Margir yrkja atómljóð,
og einstaka sig telja.
Þeir í opin sækja sjóð,
sig alltof ódýrt selja.

Ferskeytlan hún mitt form er,
fellur að mér dálaglega.
Við limrur einnig líkar mér,
ef læðist að þeim varlega.

Persónulegt mat mitt er,
að misjaflega fólki gengur.
Bundið málið binda sér,
bara æfa sig því lengur.