Frá mbl.is

Forsalan á síðustu og sjöundu bókinni um Harry Potter á íslensku hefst á morgun, miðvikudaginn 18. júlí. Allir þeir sem kaupa bókina í forsölu fá hana til sín 7 dögum fyrir útgáfudaginn 15. nóvember.

Í fréttatilkynningu kemur fram að forsalan mun fara fram í gegnum netbúð Hagkaupa, hagkaup.is. Einnig er mögulegt að skrá sig í gegnum tölvu í þremur Hagkaupsbúðum: í Kringlunni, Smáralind og Skeifunni.

Verð á bók í forsölu er 3980 kr.

Frábært.. ég ælta að panta bókina á morgun :D … en það er svolítið óvenjulegt að hafa forsölu áður en ensku útgáfan kemur út.. ekki satt?

Bætt við 17. júlí 2007 - 22:36
www.hagkaup.is