Nú fer í gang á nýjan leik spurningakeppni. Hún verður þó með öðru sniði en áður, að þessu sinni í formi vísbendingaspurninga. Á fimmtudögum mun koma inn fyrsta vísbending spurningar, síðan mun ný vísbending fylgja daglega þangað til að allar fimm vísbendingarnar hafa verið birtar. Fyrir rétt svar við fyrstu vísbendingu fást 5 stig, fyrir rétt svar eftir aðra vísbendingu, 4 stig osfr. Hver notandi má senda inn eitt svar við hverri vísbendingu og svörin skulu send sem skilaboð til Samot.
Þar sem síðasta vísbendingin mun birtast á mánudegi mun svo staðan vera birt á miðvikudegi, daginn áður en ný spurning er birt.
Með von um góða þáttöku,
stjórnendur.
Voldemort is my past, present and future.