Hvað eru Weasley systkinin gömul?

Þeirri spurningu er alls ekki allri auðvelt að svara og byggist sum á getgátum. Við vitum fyrir vissu að Ron er fæddur 1980 og Ginny fædd 1981. Við vitum að þegar Ron var á fyrsta ári í Hogwarts, árið 1991, var Percy á 5.ári, því hann var nýorðinn umsjónarmaður. Það þýðir að Percy Weasley var fæddur árið 1976.
Við vitum einnig að þegar Ron var á 5.ári, árið 1995 voru þeir Fred og George á 7.ári, sem þýðir að þeir voru fæddir árið 1978.

Fæðingarár elstu bræðranna, Bill og Charlies, eru aftur á móti þokukennd. Tímalínur HP-lexicons gefa þó áætluð ártöl fyrir skólagöngu þeirra, sem byggð eru á aldri hinna bræðranna og alls kyns upplýsinga úr bókunum.
Þar er gefið upp að Bill Weasley hafi verið í Hogwarts 1977-1984, sem þýðir að hann var fæddur 1966. Charlie Weasley á að hafa gengið í Hogwarts á árunum 1979-1986 sem þýðir að hann fæddist árið 1968.

Förum nú snöggt yfir aldurinn:

Í fimmtu bókinni voru:

Bill Weasley 29 ára,
Charlie Weasley 27 ára,
Percy Weasley 19 ára,
Fred & George Weasley 17 ára,
Ron Weasley 15 ára
og Ginny Weasley 14 ára.

Árið 2004 væru systkinin:

Bill 38 ára,
Charlie 36 ára,
Percy 28 ára,
Fred & George 26 ára,
Ron 24 ára,
og Ginny 23 ára.

Þar hafið þið það….