Sá þetta á mbl.is

Skoski rithöfundurinn J.K. Rowling, sem helst er þekkt fyrir bækur sínar um Harry Potter, er að skrifa glæpasögu. Hefur sést til hennar á kaffihúsi í Edinborg þar sem hún veltir fyrir sér fléttu glæpsins í bókinni en harðneitar að upplýsa um það.

Á vef Rowling kemur fram hana langi til að skrifa eitthvað allt annað en hún hefur gert hingað til. Hún ætli hins vegar að taka sinn tíma í það. „Ég ætla að gera hið sama og ég gerði þegar ég skrifaði Harry Potter, að skrifa það sem mig langar til," segir Rowling.

Vó, það væri geðveikt.. O_O