Meina augljóst bara, ef hún hefði ekki verið í sögunni þá hefði Sirius ekki dáið. Það var henni að kenna að Harry og Co fengu ekki að nota arininn eða tala við Dumbledore til að vara Sirius við. En svo á Kretcher (man ekki alveg hvernig það er skrifað) STÓRAN þátt í því líka, en ég vorkenni nú frekar honum heldur en Umbridge þar sem hún var fædd til að vera svona leiðinleg, en Kretcher ekki. Bara óheppinn með húsbónda greyið.
Samt sem áður þá komumst við ekki hjá því að viðurkenna það að það var einnig Harry að kenna að Sirius dó, hann notaði ekki spegilinn sem Sirius gaf honum, þannig hefði hann getað komið í veg fyrir þetta allt saman…
ætli allir séu ekki sekir að einhverju leiti. :o/
Vatn er gott