Ég hef verið að pæla í því hvers vegna Voldemort vildi drepa Harry og pabba hans.
Fyrst pældi ég í því að hann hefði drepið mömmu hans og pabba af því að þau voru í Fönix reglunni en þá mundi ég að Voldemort ætlaði ekki að drepa mömmu Harrys. Mamma Harrys var úr muggaætt en Voldemort ætlaði ekki að drepa hana.
Mér finnst þetta voða skrítið.
Getur einhver komið með hugmyndir hvers vegna Voldemort vildi drepa Harry(og enn vill) og pabba hans?
Takk fyrir
Smjö