Sæll notandi.

Það er eins og fólk sem stundar þetta áhugamál sé annað hvort ólæst eða einfaldlega skilur ekki það sem það lesur.

Að því gefnu að allir sé læsir þá getum við áætlað að margir/flestir lesi ekki eða skilji ekki reglurnar sem ég og HlynurS höfum sett hérna upp.

Tilkynningarnar hérna gætu alveg eins farið þar sem fæstir lesa þær. Oftast setjum við tilkynningar hér sem eiga að skipta ykkur máli og þið eigið þar af leiðandi að lesa ef þið viljið fylgjast með.

Allavega þá er búið að bæta við nýrri reglu og kvet því alla til að lesa þær uppá nýtt.


Einnig vill ég minna fólk á að tilgangslausir korkar, tilgangslaus svör sem skapa bara rifrildi og notendur sem svara ítrekað öðrum notendum með leiðindum og óþarfa böggi er ekki vel liðið.

Þeir taka það bara til sín sem eiga sökina að einhverju af þessu.

Við skulum reyna að halda þessu áhugamáli nokkuð góðu og sleppa öllu rugli. Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

Reglurnar má finna fyrir ofan myndakubbinn.

Með von um breytingar til hins góða.


EDIT: Vonandi þarf svo ekki að minna fólk á að vanda korka, kannanir, tengla, myndir og greinar.