Er að selja ESP EX-250 rafmagnsgítar og Line6 magnara. Verður að seljast helst í vikunni!

Ástæða fyrir sölu: Hef ekki notað þetta í meira en 1 og hálft ár og ég er að safna mér fyrir bíl.

Ég keypti gítarinn á Ebay í október 2007 minnir mig. Fékk hann á 350 pund - guð veit hvernig gengið var þá.

Magnarann keypti ég í sumar 2007 á minnir mig einhvern 30 þús kall (er ekki ALVEG viss).

Gítarinn er með nokkrar skrámur á sér sem sjást varla úr fjarlægð - ef þú heldur á gítarnum sjást þær. Mig minnir að fyrrverandi eigandi gítarsins hafi átt hann í 2 ár áður en hann seldi mér hann. Magnarinn er vel farinn og lítið notaður.

Með fylgir gítartaska með ásaumuðu Metallica merki og Metallica - Black Album gítarbók (fyrrverandi eigandi greinilega mikill Metallica fan). Frábær kaup fyrir byrjendur á gítar!

Getið haft samband við mig hér á huga, msn toggi77@hotmail.com en léttast væri að hringja í mig í síma 770-0144.

Bætt við 14. júlí 2009 - 23:34
gleymdi myndum!

http://c4.ac-images.myspacecdn.com/images01/28/l_a98a0aa0828f45270d6da66821bf683f.jpg

http://c4.ac-images.myspacecdn.com/images01/38/l_7ceb1b55677aefca4d7c9ced72205fdb.jpg

Get reddað fleiri myndum ef þess eru þörf.