Ég hef lengi verið að pæla og látið mér langa að versla mér
formagnara og kraftmagnara frá Ashdown. helst þá.
ABM RPM1 + ABM 1000. Og langar að fá mér síðan box frá Aguilar 4x10“ + 1x15”. boxin þurfa að vera 4ohma en ég held að Aguilar framleiði ekki 15" í 4ohma svo að ég verð sjálfsagt að leita annað með það. Það er náttúrulega hægt að fá að heyra í ashdown í tónabúðinni. En gaman væri ef einhver ykkar væri með eitthvað af þessu. gæti þá látið mann vita ef hann væri að spila einhversstaðar þannig að maður gæti komið og hlustað. Ég hef hinsvegar ekki heyrt að neinum hér sem er að nota Aguilar box. En ef þið vitið um einhvern, endilega látið mig vita…