Góðan dag, drengir og stúlkur.

Er hérna með Peavey Classic 30 magnara sem mig langaði að athuga hvort einhver hefði áhuga á, þar sem hann hentar ekki í það sem ég er að gera og hefur aðallega verið að safna ryki uppá síðkastið. Hann er ca. 5 ára gamall og hefur ekki verið notaður mikið, aðallega á hljómsveitaræfingum hérna áður og aldrei verið notaður á tónleikum.

Ég er nýbúinn að láta renna yfir hann, og allt var í góðu standi. Gæti samt farið að styttast í að það þyrfti að skipta um lampa.

Hef sérstaklega áhuga á að athuga hvort einhver hefði áhuga á skiptum, ef einhver er með magnara eða haus, sem hentar í þungt rokk og metal. Annars er ég líka opinn fyrir pening, veit svosem ekki alveg hvað ég vildi fá fyrir hann, þannig að þið getið bara prufað að bomba á mig einhverjum tilboðum. Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að spurja mig, ég svara þeim sjálfsagt bara hérna fyrir neðan.

Takk fyrir!

http://www.peavey.com/products/instamplifiers/guitaramps/classic/index.cfm/item/116335/Classic%26reg%3B%26nbsp%3B30%2F112.html
-Izzy