Sæll
Ég er bæði með Telecaster (SS) og Musicman Axis Sport (HH). Mér finnst þeir báðir hljóma vel. Rás tvö er fín í breakup blús hljóm og hljómar vel þannig en ekki ef ég vil fá þéttan crunch eða drive rythma.
Ég leysti einu sinni af gítarleikara sem notaði Mesa Stilletto og hann hljómaði mjög vel, þétt gain í honum. Ég greip einu sinni í Bogner Shiva combo á giggi og hann hljómaði líka mjög vel, hafði bara ekki mikinn tíma til að stilla. Ég hef ekki prufað Electra Dyne en sýnist hann verulega góður.
Ég reikna með að Lone Star Special sé með þéttara gaini en LSC en hef ekki prófað hann … ég hef heldur ekki sett EL-34 lampa í LSC. Hef þó heyrt að það muni ekki svo miklu.
Ég myndi ekki vilja annan magnara nema clean rásin væri jafn góð, eða svipað góð og í Mesa Lone Star Claassic.
Kveðja,
geng