Góða daginn.

Ég er búinn að glamra á kassagítar af og til í nokkurn tíma og er því bara byrjandi.

Mig langar í rafmagnsgítar og magnara (aðallega fyrir headphone) en veit ekkert hvað er sniðugt og hentugt fyrir mig.
Er helst að leita að einhverju ódýru sem þó er vel spilandi á, heldur stillingu þokkalega og er vænt fyrir augað!

Sé oft Squier auglýsta til sölu en það virðist vera mjög umdeilanlegt hve menn eru hrifnir af honum.

Getið þið Hugagítarsnillingar gefið mér góð ráð í sambandi við kaup á byrjandarafmagnsgítar?
Hvað hafið þið að bjóða?

Takk fyrir,
GS.