Jæja, ég er að spá í því að flytja inn eitt stykki Schecter Hellraiser Avenger og er með nokkrar vangaveltur.

Ég las þetta og er einhvers vísari.

Ég notaði þetta til að reikna út hvað þetta kostar og þar kemur þetta upp þannig að ef varan kostar 95.000 kr, þá sé vsk 23.275 og svo hitt bara 0. Getur það staðist.

Svo athugaði ég hér (síða 501) til að athuga hve hár tollurinn er. (Það stendur 0%. Getur það verið?)

Ég prufaði einnig ShopUSA.is en þar fékk ég upp tæpan 170.000 kall fyrir allt saman.

Svo langar mig að spurja hver gjöldin eru sem leggjast á hljóðfæri og hvort það sé eitthvað annað sem þarf að hafa í huga?