Peavey Bandit 112
80 watta solid state magnari
Tveggja rása - clean og lead rásir með sitthvorum 3 banda EQ. Reverb og fleiri stillingar (sem ég hef aldrei notað). Innan rásanna tveggja er síðan hægt að velja frekari stillingar (s.s. “Vintage” “Modern” o.s.frv.) og því hægt að fá gríðarlega fjölbreytt hljóð úr honum. Ég nota aðallega clean rásina með pedulum fyrir distortion og soundið er mjög fínt.

Hann hefur aðeins 2 farið út úr húsi, bara verið heimamagnari, hann er auðveldlega með nægilegan kraft fyrir æfingar og öll smærri gigg. Hann er í fullkomnu ásigkomulagi fyrir utan að ég virðist hafa týnt fótsvitsjinum, ég nota hann aldrei og hann hefur einhversstaðar týnst. Ég ætla þó að gera dauðaleit að honum.

Kostar nýr af netinu tæpar 60þúsund en ég verslaði þennan fyrir einhverjum 6 árum á 40 þúsund. Hann fer því á 20þúsund notaður. Skoða öll tilboð og er einkar áhugasamur fyrir skiptum.

Einnig er ég með til sölu tvo overdrive effekta.
Annars vegar Marshall Bluesbreaker II overdrive sem er mjög fínt lítið stompbox. Góður fyrir svona gamaldags overdrive hljóm. Bara notaður hér heima og vel með farinn, kemur með nýjum batteríum. Verð 5000 krónur.
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Effects/product/Marshall/BB-2+Bluesbreaker+II/10/1

Hinsvegar er ég að selja VOX Cooltron Big Ben Overdrive.
Þetta er lampa overdrive, semsagt keyrt af 12AU7 pre-amp lampa og gefur þér yndislegan lampa hljóm. Hægt að fá allskonar overdrive hljóð úr honum. Virkar mjög vel með solid state mögnurum til að fá smá lampa búst í hljóminn. Verð 10.000 krónur.
http://reviews.harmony-central.com/reviews/Effects/product/Vox/Cooltron+Big+Ben+Overdrive/10/1

Þessar vörur eru allar að fá gæða dóma.

Ég er mjög opin fyrir öllum skiptidílum, sérstaklega varðandi effekta (er að leita að góðum fuzz en opinn fyrir öllu) og síðan vantar mig einhverja hljóðnema. Endilega bara gerið tilboð ef ykkur lýst ekkert á verðin, er líka tilbúinn að lækka verðið ef keyptir eru fleiri enn einn hlutur í einu. Best að hafa bara samband gegnum hugapóst eða á lyfta13@visir.is