Reyndu bara að komast að þessu sjálfur.
Spurðu hvað þetta er gamalt, gáðu hvort þú getur ekki fengið að sjá þetta og prófa.
Svo er lítið mál að hringja í hljóðfæraverslanir í dag og spurja hvað svona græja kostar og fá verðhugmynd um sanngjarnt verð á notaðri græju.
Svo ef þú ákveður að kaupa þetta og svo þetta hrynur í sundur strax og þú ætlar að nota þetta, þá áttu bara að vera búinn að taka niður símanúmer hjá viðkomandi svo þú getir náð í hann/hana aftur.
Það er ekkert mál að verða sér útum upplýsingar, þú verður bara að setja smá vinnu í það. Það er ekki hægt að láta mata sig endalaust af upplýsingum :)