Ég er með Pearl export sett sem ég hef engin not fyrir lengur svo ég hef ákveðið að selja það. Settið er í stærðunum 12“ og 13” tom, 16“ floor, 18” bassatromma og 14" snerill. Hvorki Hiahat standur né bassakicker fylgja en aftur á móti koma ágætis Zildjian hihatar og eitt bómustatíf með settinu.

Húðirnar eru vel með farnar Evans EC2 Coated á 12,13 og 16, Remo Fiberskin á bassatrommunni og Evans Genera HD Dry ofan á snerlinum. Undir honum er glænýtt Evans Snare side 500 gl og nýir Sonor SW 1424 B gormar.

Þetta er mjög gott byrjendasett, ég er sjálfur búinn að nota það í tvö ár og eina ástæðan fyrir kaupum á nýju var sú að mig vantaði annað í æfingahúsnæði hjá hljómsveitinni.
Ég var að hugsa um svona 55.000 kr. fyrir þetta en endilega komið með tilboð hér.

Hér eru svo myndir:
http://s251.photobucket.com/albums/gg313/gnurr/?action=view&current=IMG_8543.jpg
http://s251.photobucket.com/albums/gg313/gnurr/?action=view&current=IMG_8542.jpg
Tama Starclassic B/B