Hér eru myndir af tveim Titanium sneriltrommum sem ég var að klára að smíða. Þær eru 14x5.5“ og 14x6.5”. Þær heppnuðust vonum framar og hljóma hreint ótrúlega.

Titanium hefur eiginleika viðar og málms, hlýjar eins og viður en bjartar eins og málmur. 14x6.5“ tromman er algjör bomba; þykkur feitur hljómur, mjög ”sensitíf“ og köttar vel.

Skeljarnar eru ”Handmade in Grindavík, Iceland", hardware-ið er að sjálfsögðu aðkeypt.

Að því ég best veit eru einungis tvö önnur fyrirtæki í heiminum sem framleiða Titanium trommur; Kitano (Japan) og Dunnett Classic Drums (Kanada).

http://www.mydrumpix.com/showphoto.php?photo=7196&cat=500&ppuser=653
www.trommari.is