Þannig er nú mál með vexti að ég er að æfa á píanó. Ég fæ að æfa mig í kirkjunni þar sem ég á heima, en næsta haust flyt ég í bæinn þannig að ég sé mér ekki fært að geta æft mig í kirkjunni… :( jæja allaveganna þá vantar mig alveg ægilega píanó til að geta haldið áfram að æfa þegar ég flyt suður…
EN málið er nú bara þannig að ég flokkast víst undir “fátæk skólastúlka” svo þetta píanó má ekki vera alltof dýrt. Ég geri mér auðvitað fyllilega grein fyrir því að gott píanó er dýrt píanó, en ég krossa bara fingur og vona að einhver þarna úti eigi alveg akkúrat það sem ég er að leita að….

ég lifi og voninni og kveð
Kvkhamlet