Kvöldið..

Mig langar svolítið til að fá mér lampamagnara fyrir gítar. Hljómsveitirnar sem ég spila á gítar eru ekki starfandi eins og er þannig að ég er bara mest heima að leika mér og æfa mig þannig að ég þarf ekki stórann magnara. Með hvaða lampamagnara mæliði með fyrir svona heimaspilerý sem soundar vel og ekki neitt of dýr ?? Og endilega senda mér link á þessa magnara og kannski verð ef það stendur ekki.

ooooggg hvað kostar cirka eitt stykki svona lampi og hvað þarf að skipta oft um þá ?
Contalgen Funeral