Góðann og blessaðan daginn. Ég er að selja blátt Maxtone trommusett, með nýjum tama maple snerli, nýjum zildjan zxt pro diskum og nýjum yamaha stativum.


Trommusettið er 6 trommu-sett (bassatromma, 4 tom og 1 floor tom) +2 stativ sem að ég fékk með settinu. Þetta er ekki nýjasta settið í bransanum svo að ég ætla ekki að setja meira en 20.000kr á það. Það sést lítilega á því og það þarfnast stillingar (ég er ekki trommari svo að ég kann ekkert að stilla þetta) en annars alveg ágætis sett. Einnig fylgir Pearl kicker með settinu, stativ fyrir auka tom trommu, klemma fyrir auka tom trommu og stóll. Búið er að setja ný skinn á tvo tom og floor tom, en það vantar skinn undir floor tom. Ég er með e-n poka með aukahlutum í sem að ég mun láta fara með og svo e-r stangir sem að hægt á að vera að nota í þetta.
Stærðir:
Bassatromma - 22x
Tom - 8x10, 10x10, 12x?, 13x?
Floor tom - 16x?
Man ekki alveg stærðirnar:S

Tama maple snerillinn fæst á 15.000kr (var keyptur nýr á 20.000kr) hann er 5x12 stærð og soundar helvíti vel.

Zildjan ZXT pro diskarnir seljast saman á 15.000, þeir eru ekki mikið notaðir og eru í mjög góðu ástandi. Einnig fylgir Meinl Meteor Ride með, hann er mikið eldri en hinir diskarnir en er samt nokk góður.
Zildjan ZXT pro Hi-hat 14“
Zildjan ZXT pro Crash 16”
Zildjan ZXT pro Ride 20“
Meinl Meteor Ride 20”

Yamaha statívin eru 3, 2 bómu statív og 1 Hi-hat stativ. Þau fara saman á 15.000kr. Þau eru líka frekar nýleg.

Ég ætla að taka það fram að ég er ekki trommari svo að ef að það er e-ð sem að þið þurfið að fá að vita um settið þá vinsamlegast hjálpið mér við að svara ykkur :D

Held að ég setji 65.000kr á allann pakkann.

Ég er að selja þetta vegna þess að mig vantar bara peninginn til annara hljóðfærakaupa og svo hef ég ekki pláss fyrir þetta heima.
Ef að ykkur vantar upplýsingar um settið eða e-ð annað addið mér bara á msn, someone9992@hotmail.com