Ég fer ekki að kaupa mér lampamagnara núna, þar sem fólk býr fyrir ofan mig, og bílskúrinn í stífri notkun af pabba…
Þá segir það sig sjálft að ég fer ekki að stilla lampamagnara hátt, af sömu ástæðum.
Það er því muuun hagstæðara fyrir mig að kaupa mér Line 6 Flextone III núna, og fá nokkurn slatta fyrir peninginn. Svo jú, mun ég selja hann í framtíðinni þegar ég er kominn á fullu í hljómsveit sem verið er að stofna…
En á meðan ég er ósköp venjulegur 15 ára náungi sem lifir á blaðburði og þessu smáklinki úr unglingavinnunni <u>ÆTLA</u> ég bara að láta Flextone-inn duga í bili.
Ok, þetta sem þú segir með Effectana… Það er nú bara þannig að ég spila nánast eingöngu tónlist, tjah, hvað eigum við að segja… frá Led Zeppelin uppí Cannibal Corpse og þannig Deathmetal dæmi… Þá tel ég Gainið í Flextone vera nóg, og kannski ég prufi að tengja einhvern annan effect í magnarann og sjá hvernig hljómar.
En semsagt; Ég kaupi mér Flextone núna, og sel hann þegar foreldrar mínir hafa keypt einbýlishús (ætli það sé ekki hugsunin núna ;)), og ég kominn á almennilegt skrið í hljómsveit, og kaupi mér svo lampamagnara þegar ég er ready í það ;)
Allavega myndi ég segja að Line 6 sé bara málið núna þar sem ég hef einfaldlega ekkert við meira að gera þú skilur.
kv,
Quadratic
<br><br><font color=“red”>_______________________________</font>
<i><font color=“purple”>Darkness has its attractions, which everyone can feel…
only hypocrites deny.
It's time to remove the blindfold of hypocrisy.
Stay true to yourself, Hail Satan.
</font></i>
<i><font color=“Silver”>Shagrath - Dimmu Borgir</font></i