Er einhver þarna úti sem hefur reynslu af rafmagns trommusettum??
Ég er að spá í að fara endurnýja tækjakostinn minn þar sem að settið mitt er eiginlega ónýtt enda orðið 15 ára gamallt, og þar sem ég er fluttur úr foreldra húsum missti ég afnot af bílskurnum og vantar þí helst eitthvað hljóðlátt til að æfa mig á.
Þannig að ef einhver hefur reynslu af svona settum væri fínt að fá nokkur komment plúsa og mínusa.