Ron Thal / Bumblefoot - Vigier gítarar Eru einhverjir hérna sem kannast við þennan gítarsnilling? Þetta er maður sem spilar á Vigier gítara (www.vigierguitars.com) og spilar einhvers konar fusion/jazz/rokk blöndu. Þessi gítarleikari hefur einnig verið á coverum á öllum helstu gítartímaritum í heiminum að mér skilst.

Maðurinn var í Hollandi núna í byrjun mánaðarins að spila á stuttum clinic túr þar (reyndar með hljómsveit, sjá http://www.ronthal.com/news/0209-holland/MyTripToHollan d.htm) en ég þekki bandið sem spilaði með honum og datt í hug eftirá, hvort að það hefði borgað sig fyrir mig að fá kappann til að stoppa á Íslandi aðra hvora leiðina til að taka smá clinic hérna… Það tækifæri er s.s. ekki lengur til staðar, en hefði verið gaman að fá hann hingað trúi ég…

Þá kannski a spurningu dagsins… eru Vigier gítarar eitthvað þekktir hér á landi? Ég er ekki gítarleikari sjálfur þannig að ég þekki þetta ekki…

Þorsteinn
Resting Mind concerts