Nýtt alþjóðleg kynbótamat (BLUP) hefur verið reiknað út af dr. Þorvaldi Árnasyni og er komið inn í gagnagrunn WF. Í fyrsta skipti var nú reiknað kynbótamat fyrir öll hross í grunni WF, en áður voru aðeins 11 lönd í útreikningnum. Hafa ber í huga að hjá mörgum hrossum í ,,nýju löndunum" eru öryggi kynbótamatsins aðeins 30%, sem er lágmarksöryggi, en Þóra frá Prestbæ er efst allra hrossa með 132 stig.
mbk. Böðvar Guðmundsson