Hestheimar verða með íslenska daga á búgarði Styrmis Árnasonar í Þýskalandi dagana 29.-30.okt. 2010, von á rúmlega 200 manns.


Eigendur Hestheima fara með FULLT af íslensku lambakjöti, sviðum, brennivíni, hákarli og fleiru gómsætu til Þýskalands
Kynning verður á Íslandi og íslenskum mat og Hestheimum, einkum lengri hestaferðunum og íslenska hestinum.

Hestheimar fara á eigin vegum ,en með góðum stuðningi frá: icelandair, Íslenskum sauðfjárbændum, sælgætisgerðinni Freyju og Nóa-Síríusi.
Miklar væntingar og tilhlökkun eru bundnar við þessa daga og frábært að fá aðstoð frá góðum aðilum.
Nánari upplýsingar má sjá: www.hestheimar.is
mbk. Böðvar Guðmundsson