Vildi bara segja ykkur frá þessu!!

um daginn fór ég upp í haga þar sem hestarnir mínir eru í um 70 hesta stóði!!

Allavega..það var tryppi þarna sem var ca 1 vetra að leika sér við tryppið mitt..!

ég veit að þeir fæddust á svipuðum tíma og halda sig oftast saman í hóp.

Svo var ég að taka merina mína aðeins inn í gerði og þeir tveir eltu…!

þetta var svona hringlaga gerði og hundurinn minn var með. Svo byrjuðu þeir eitthvað að hlaupa og hundurinn á eftir,svaka stuð, og þið hefðuð átt að sjá tryppið!!!!

Hann hljóp bara nokkra hringi og var með lyftingar upp í höku liggur við :)

ég veit ekki undan hverjum þetta tryppi er en ég veit að foreldrarnir eru ekkert þekktir. Ekki skráðir eða neitt..:!!!

en bara að sjá hreyfingarnar…!!!
þetta hefði alveg eins getað verið verðlaunahross sem kostar í kringum milljón..!!!!!

vá…mig langaði svo í hann!!!:)<br><br>#16
#16