Eg semsagt datt af baki og ég viðbeinsbrotnaði vinstra megin! :(
Hesturinn minn hrasaði og ég rann eiginlega af honum.
Þetta átti sér stað rétt hjá Íshestum í Hafnarfirði.
Fyrst keyrði bróðir minn mig upp á heilsugæslustöðina og svo á Landsspítalann.
Eg var að koma af reiðnámskeiði og enginn var með mér.
Mamma og pabbi voru í jarðarför þannig að þau gátu ekki komið og voru hvort sem er með slökkt á farsímunum þannig að bróðir minn gat ekki náð í þau.
Eg má ekki mæta í skólann og verð að vera heima alla næstu viku!! :'( Eg get ekki spilað á gítarinn, ekki farið á hestbak og get ekki sest niður nema með að meiða mig.
Þetta var í fyrsta skiptið sem ég datt af baki þannig að nú er ég víst orðin “alvöru hestakona”. Rugl…
Læknirinn sagði að þetta mundi verða bærilegra eftir svona viku.
En jæja…þakka ykkur fyrir að hafa lesið þessa grein (það er að segja ef hún verður samþykkt..)
Kv. grettirmax
……….