Það hefur farið fram mikil umræða um Vísindakirkjuna að undanförnu svo að ég ákvað að skella inn hluta af rigerð sem ég er að vinna í um hana. Þetta er sagan af Xenu, “Satan” þeirrar trúar og allt sem við honum kemur.
Síðan sendi ég ritgerðina í heild inn þegar hún er alveg tilbúin.

Birt með fyrirvara um allar innsláttar og mál-villur.

Vísindatrúar trúa því að fyrir 75 milljónum ára hafi Xenu (borið fram Zínú, hann gengur einnig undir nafinu Xemu), keisari Stór-Stjörnuveldis sem saman stóð af 26 stjörnum 76 plánetum, þar á meðal Jörðin, hafi heimsótt Jörðina sem þeir kölluðu Teegeeack. Það offjölgaði í heimveldinu og íbúar þess voru komir yfir 178 milljarða. Þess má geta að á Jörðinni búa nú um 6 og hálfur milljarður manna. Þegnar þessa stórveldis voru alveg eins og við á 6. áratug síðustu aldar, þeir ferðuðust með bílum, lestum og bátum, gengu í eins fötum og við. Xenu var við það að víkja frá völdum svo að hann ákvað að eyða mörgum milljörðum þegna sinna til að sporna gegn offjölguninni, eða eins og Hubbard orðaði það “to relly goof the floof” sem mætti þýða að “láta allt flakka” . Með aðstoð liðhlaupa frá Stórstjörnusamveldinu sigraði hann alþýðuna og Liðsforingjana sem voru þeir einu sem voru svipað valdamiklir og Xenu. Hann gabbaði þegna sína til að koma saman milljörðum saman með því að segja að þeir ættu að koma í skattyfirlit. Þá voru þeir sljófgaðir með áfengi og glýseróli og settir í geimflaug, sem á að lýta út alveg eins og Douglas DC-8 flugvélarnar sem voru notaðar á árunum 1958 to 1972, nema notuðu ekki með hreyfla.
Mynd af DC-8 : http://upload.wikimedia.org/wikipedia/en/8/89/Xenu_space_plane1A.jpg

Þegar þeir komust á Teegeeack/Jörð var geimverunum komið fyrir í eldfjallagígum víðs vegar um Jörðina. Vetnissprengjum var varpað í gígana svo að fáir efnislegir líkamar geimveranna komust af.
Hubbart lýsti þessu svona í kvikmyndahandriti fyrir myndina Revolt in the Stars:
Simultaneously, the planted charges erupted. Atomic blasts ballooned from the craters of Loa, Vesuvius, Shasta, Washington, Fujiyama, Etna, and many, many others. Arching higher and higher, up and outwards, towering clouds mushroomed, shot through with flashes of flame, waste and fission. Great winds raced tumultuously across the face of Earth, spreading tales of destruction. Debris-studded, and sickly yellow, the atomic clouds followed close on the heels of the winds. Their bow-shaped fronts encroached inexorably upon forest, city and mankind, they delivered their gifts of death and radiation.
Sálir þeirra sem fórust í sprengingunni skiptust í marga parta og urðu að svokölluðum thetans . Þau köstuðust út í sprengingunum og voru síðan gripin af Xenu með “sálaföngurum”. Síðan voru þau soguð á gæslusvæði um allan heim. Þessi hundruð milljarða thetans voru síðan send í “bíó” á heilaþvottarstöðvum eins og Hubbart sagði sjálfur. Þar voru þau heilaþvegin. Þau voru neydd til að horfa á kvikmyndir í 36 daga. Með þessu voru allar minningar thetan(ana) þurrkaðar út. Í staðinn komu upp ýmis villandi gögn, allar hugmyndir um trúarbrögð, Guð, Djöfulinn og allt sem því kemur við. Því eiga öll trúarbrögð heims að veru undir áhrifum Xenu, hann á að hafa einbeitt sér að Rómversk-kaþólskri trú og krostfestingu Krists. Öll leikrit og kvikmyndir eiga líka að vera undir, að okkur ómeðvituðum, áhrifum Xenu. Nokkrar af þessum inrætunar stöðum eiga að hafa verið á Havaii, Los Palmas og Kanaríeyjum.
Til að innræta ný trúarbröð í thetans voru þau svipt öllum persónuleika. Thetansin söfnuðust saman þegar þau komust út af heilaþvottarstöðunum og söfnuðust nokkur þúsund í hópa, algjörlega búin að missa hæfileikann að greina sig hvert frá öðru. Sumir hópanna komu sér fyrir í nokkrum af fáum líkömum þeirra sem komust af í sprengingunum. Þau eru kölluð líkamleg-thetan. Þau eru enn til í dag valda öllum vandamálum sem mannkynið stendur uppi með í dag, s.s. sjúkdóma, skilnaði, drykkjuvandamál o.fl. Nema fyrir þá fylgismenn Vísindakrikjunar sem hafa farið í nauðsynlegu meðferðina sem þeir bjóða upp á til að farlægja þau. Thetans sem ekki komu sér fyrir í líkömum þeirra sem lifðu af var sleppt og þau ráfuðu um jörðina þangað til að mannkynið kom fram fyrir um 200.000 árum og urðu að sálum þeirra.
Liðsforingjarnir náðu loks að sigra Xenu og lokuðu hann inn í fjalli. Hann var fjötraður með óleysanlegum fjötrum sem voru knúnir með ótæmanlegri rafhlöðu. Sumir segja að Xenu sé fangaður í fjalli hér á Teegeeack/Jörð, en Hubbard segir að hann hafið verið lokaður inni á einum af plánetum Stjörnusamveldisins. Eftir þessa hræðilegu atburði var Teegeenack/Jörð vísað úr Stjörnusamveldinu og varð að svokallaðri “fangelsis-plánetu” og hefur síðan þá verið stjórnað af hersveitum frá Stjörnusamveldinu og er það enn í dag.


Nánar um Thetans
Thetan er skýrt eftir gríska stafnum Theta sem sést hér til vinstri.
Eins og áður kemur fram er líkamlegt-thetan allt það slæma sem kemur fyrir okkur mannfólkið, s.s. drykkjuvandamál, sjúkdómar og ofát. En venjuleg thetan eru sálir okkar.
Vísindakirkja lýsir Thetans svona:
Thetan er ódauðleg andleg vera : mannssálin
Veran er sá sem býr í líkamanum
Thetan er ekki hlutur , thetan skapar hluti
Thetan er persónan sjálf, ekki líkaminn eða nafnið, andlegi alheimurinn, hugur hans eða nokkuð annað; það er að vera viss um að vera viss. Kennimark hvers einstaklings. Thetan er þér kunnulegt og eins og öllum öðrum.
Þegar fólk deyr, eða eins og fylgismenn Vísindakirkjunar segja : Þegar Thetan yfirgefur líkama sinn, fer það á einskonar lendingarstöð á Venusi. Þar er það endur-innrætt og sagðar lygar um fortíð sína og næsta líf sitt. Fólk hefur öldum saman talað um fyrri líf og hafa séð brot úr þeim, það er í rauninni minningar thetans úr þeim ótal lífum sem hvert og eitt hefur lifað. Síðan er thetan tekið og sett í hylki, sent aftur til Jarðarinnar og hent í hafið fyrir utan strönd Kaliforníu. Ef að thetan kemst út úr hylkinu getur það farið inn í nærlyggjandi borgir og gengið um frjálst. Til að koma í veg fyrir þetta eiga fylgismenn Vísindakirkjunar að neita að fara til Venusar, heldur til Úranusar.
Fyrst um sinn hélt Hubbard því fram að thetan hefið engann massa eða þyngd, en seinna hélt hann því fram að það væri rúm 45 grömm að þyngd og í einstaka tilfelli 60 grömm (það voru ofur-thetan).
Máttur thetan er svo mikill að þau höfðu verið til í milljarði ára, bara af því að þau komu sér saman um það.
Viðtalsferli Vísindakirkjunar snýst um að losna við líkamlegu-thetanin og auðlast aftur guðdómlegan styrk sála okkar, thetan.

Nánar um líkamleg-thetans (Body-thetans)

Eins og áður kemur fram er líkamlegt-thetan sett saman úr mörgum thetans sem hafa komið sér fyrir í einum líkama af þeim fáu sem komust af í sprengingum Xenu, þaðan kemur nafnið líkmalegt-thetan. Það festir sig á manneskjuna eða nálægt henni og veldur öllu vondu sem kemur fyrir hana, s.s. sjúkdóma, ofdrykkju eða þunglyndi.
Þeim er stjórnað af Xenu og skaða hin Thetanin sem urðu til í sprengingunni. Allir sjúkdómar og vandræði eru því andlegir og þarf að fjarlægja með viðtalsmeðferðum og örðum úrræðum.
Það er nefnilega það.