http://www.mbl.is/mm/frettir/erlent/2007/12/28/lest_af_voldum_hofudhoggs/

Mér finnst það ótrúleg flónska að halda að svona útskýring verði tekin trúverðug af almenningi eða ég ætla rétt að vona að fólk sé ekki það glært að það trúi þessu. Fyrstu fréttir voru að hún hefði verið skotin, síðan að hún hefði fengið í sig brot úr sprengju sem árásarmaðurinn bar á sér, síðan að hún hefði fyrst verið skotin og síðan sprengd en nú loks er skýringin komin eins og meðfylgjandi tengill segir frá…
Ég veit ekki hvað þið lesið úr þessu en mér tel að hún hafi verið myrt af þeim sem voru með henni í bílnum, það þykir mér allavegana líklegra en að hún hafi einfaldlega rekið höfuðið svona harkalega í.