Saddam Hussein Í gær morgun frétti ég að Saddam Hussein væri dáinn! Þegar mér var sagt frá því leið mér eins og einhver ættingi minn hefði dáið. Ég er svo reið svo reið! En til hvers var hann drepinn? Það er alltof margt sem er verra en dauðinn! Ég bara vona að einhver hefni fyrir hann og þá munu sko bandaríska stjórnin sjá að þeir hafi ekki tekið rétta ákvörðun!

Mér finnst þetta svo hrikalega sorglegt allt saman! Sumir segja kannski “hann drap fullt af fólki” en er það endilega rétt? Er það kannski afsökun sem Bandaríkjamenn gefa til þess að fá fría olíu? Ég held að þetta gas eða hvað þetta var nú sem drap allt þetta fólk hafi ekki verið viljandi gert og þetta sé bara allt klíkuskapur!

En hefur Bush (hinn frábæri forseti bandaríkjana) ekkert um málið að segja? Ég hef bara séð eina klippu þar sem president Bush segir “We got him” (við höfum hann). Einhvern veginn held ég að Bush sé bara látinn fá einhvað bréf og sagt að lesa það fyrir fréttamennina

Takk fyrir mig og ég vona að einhver sé sammála mér um þessi efni að það hafi verið hræðileg mistök að hengja Mr. Saddam Hussein!