Sælir Battlefield ofurhugar,

Eins og nú er orðið nokkuð umtalað þá verður keppt í BF1942 (10v10) á Smellur 4, 12-14 september í Laugardalshöllinni. Keppt verður til stórglæsilegra verðlauna en eru þau hvorki meira né minna en ofur HP SERVER tölva frá Opnum kerfum. Þó nokkur af heitustu clönunm Íslands hafa tikynnt komu sína og þar má nefna 89th og .Hate.

Þessi keppni verður án efa mjög spennandi og einstök hér á landi fyrir harða BF spilara.

Ólíkt áður verður engin netskráning á Smell heldur aðeins forsala í verslunum Og Vodafone frá og með 1.september og fá þeir sem eru í viðskiptum við Og Vodafone 500.kr afslátt ef þeir versla miðann þann 1. september.

Nánari upplýsingar varðandi mótið eru á glænýrri heimasíðu Smells, www.smellur.net

Sjáumst hressir.

kv, Grapejuice.