Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Femínismi (9 álit)

í Tilveran fyrir 12 árum, 5 mánuðum
Eru einhverjar ástæður fyrir því að öllum þráðum um femínisma er eytt á huga? Er þöggun bara málið í þessum málaflokki?

Hugleiðing um árángur (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 13 árum, 1 mánuði
Löngun í viðurkenningu og verðlaun drepa alla innri drift. Hver kannast ekki við að fá verðlaun fyrir eitthvað og finnast hann vera “búinn” með það sem hann fékk verðlaun fyrir? Áhuginn fellur þá niður undir lágmark og jafnast tæknilega á við algjöra uppgjöf. Að verða meistari er það eina sem skiptir máli, því meistarinn einn getur upplifað við störf sín það einstaka flæði yfirmeðvitundar sem er lykillinn að hamingjunni. En meistarinn veit að það er alltaf hægt að verða betri og getur því...

Nöbbaspurningar (1 álit)

í Call of Duty fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Hvort er fólk meira að spila 1.6 eða 1.7 ? Eru einhver vinsæl eða nauðsynleg mod í gangi? Sá einhverja minnast á promod, hvað er það?

Bill Bailey's guide to the Orchestra (1 álit)

í Klassík fyrir 13 árum, 10 mánuðum
Tónlistarstandup-grínistinn Bill Bailey gerði fyrir stuttu mjög skemmtilegt prógram til að kynna sinfóníuhljómsveitina fyrir fólki sem er kannski orðið aðeins of gamalt fyrir Pétur og Úlfinn. Ég horfði á það og fannst það nokkuð gott: [youtube]http://www.youtube.com/watch?v=BPpeHIH7HSU Reyndar á Bill það til að fara útí mjög langsótta brandara og almennt útum víðann völl, en það er bara hans stíll.

Fall from Heaven 2 (7 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 13 árum, 10 mánuðum
Eru einhvejir sem spilhann? Ef svo, hvert er uppáhalds-liðið og taktík?

Framtíðarfáni Ísraela? (16 álit)

í Deiglan fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Vegna þjóðernishreinsana nasista vitum við að á bak við aðgerðir Ísraela býr ekki fáviska. Ísraelar eru það brot gyðinga sem þekkja þjóðernishreinsanir frá báðum hliðum, og þeir kjósa að halda þeim áfram. Það er eins og þeir telji sig æðri kynþátt sem aðrar reglur gildi yfir - guðs útvalda þjóð. Afhverju flagga þeir ekki þessari niðurstöðu sinni?

Besta acoustic hetjusóló allra tíma (4 álit)

í Metall fyrir 15 árum, 3 mánuðum
http://www.youtube.com/watch?v=tL1q91tmmrg Rafmagnsgítar eða búlgörsk sekkjapípa? Það er munur, en merkilega lítill.

Ósjálfhverfa (10 álit)

í Heimspeki fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Þegar einhver hjálpar einhverjum án þess að hugsa útí ávinning fyrir sig, er sá einstaklingur sjálfhverfur í grunninn en hefur innrætingu(tilfinninga-fúnksjón) sem breytir dæminu (t.d. hann fær nagandi samviskubit ef honum finnst hann hafa brugðist skyldum sínum og bregst þeim ekki af ótta við samviskubitið, eða einfaldlega að hann finnur til ánægju við að hjálpa öðrum, s.s. hjálpar öðrum til sér líði vel) eða er eitthvað ósjálfhverft við hans grundvallar-afstöðu sem ræður för? Hvað er það...

Frábær könnun (13 álit)

í Heimspeki fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Hvor er meira fífl? Sá sem er fíflið eða sá sem eltir fíflið? Góð spurning, ég svaraði; sá sem eltir fíflið, þar sem sumir einstaklingar eru einfaldlega ekki jafn greindir og aðrir en það er hins vegar ekkert slæmt fyrr en hann fær áhrif, s.s. þegar aðrir elta hann, kannski einhverjir sem ættu að vita betur og bera þannig ábyrgð á hinum slæmu áhrifum frekar en fíflið sem vissi ekki betur. Hverju svöruðuð þið?

Slóvenska big bandið (0 álit)

í Jazz og blús fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Heyrði einhver hérna í Slóvenska big-bandinu á rás1 áðan? Það var rosalegt. http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4354085 Ef einhver þekkir eitthvað í svipuðum stíl væri gaman að fá að vita. Ég veit um Cowboy Bebop soundtrackið en ekki meira.

"Erfiðar aðstæður" (Lesist: ólýðræðislegar) (32 álit)

í Deiglan fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Nú tekur við ný borgarstjórn og borgarstjóri við “erfiðar aðstæður” eins og hún kallar það sjálf. Hins vegar skilgreinir hún “erfiðar aðstæður” þær að hafa nær ekkert fylgi. Það kallast reyndar á mannamáli ólýðræðislegar aðstæður, þar sem þeir sem ráða núna njóta ekki stuðning meirihluta kjörbærra einstaklinga og hafa því engan rétt á sínu valdi (nema kannski í fasískum og mónarkískum skilningi). Hugmyndir sjálfstæðismanna og frjálslyndra um lýðræði eru á ótrúlegum villigötum og í fréttum...

Máttur martraða (6 álit)

í Heimspeki fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Ég vildi vekja athygli á þáttunum Power of Nightmares. Þeir fjalla um tvær siðfræði-stefnur, neo-konservatisma og öfgaíslamisma, og áhrif þeirra á heiminn. Þrátt fyrir að virðast af sama meiði og myndir á borð við Zeitgeist eru þeir gerðir af BBC og innhalda mörg viðtöl (við aðra en svokallaða ‘sérfræðinga’ eða ‘spekúlanta’) og fréttamyndir úr safni BBC sem eru áhugaverð í sjálfu sér (s.s. án samhengis við heildarmynd þáttanna). http://video.google.com/videosearch?q=power+of+nightmares

Öfgahópur! (51 álit)

í Heimspeki fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Í grein sem „24 stundir“ (fyrrum Blaðið) birtu í dag talar Tómas Torfason, formaður KFUM & K, að öfgahópur leiki lausum hala. Mér brá heldur í brún þegar ég sá að blessaður maðurinn var að tala um trúleysingja! Hvernig í ósköpunum er hægt að kalla trúleysingja öfgamenn er mér hulin ráðgáta, sérstaklega þar sem trúleysingjar hafa enga afmarkaða stefnu nema að trúa ekki á óhrekjanlega tilvist einhvers hugarburðar, siðferði þeirra og lífsskoðanir geta verið allar mögulegar fyrir því. Rökin sem...

John Stuart Mill (36 álit)

í Heimspeki fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Getur einhver sagt mér hvað í ósköpunum er svona merkilegt við þennan mann? Það sem ég veit um hann: 1) Hann setti fram nytjastefnuna. Siðfræðikenningu sem er svo augljóslega gölluð að það er varla fyndið. Hún gengur útá að hámarka óskilgreindan hlut, sem þar að auki er skilgreindur mismunandi milli einstaklinga, og slík kenning á að sameina heilt samfélag?! Langsóttari annmarkar er að kenningin ræðst gegn mannlegri reisn og réttlæti. 2) Kenningar hans um skilningur á grundvallar atriðum...

Coltrane og Coleman (8 álit)

í Jazz og blús fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég er algjörlega heillaður af þessum tónlistarmönnum, en ég veit annars voðalega lítið um þá eða djass almennt. Getur einhver bent mér á góða diska eða upptökur með þeim? Hef verið að hlusta á Something ELSE!!!!! með Coleman og My favorite things og Coltrane (Impulse!) með Coltrane. Bætt við 5. nóvember 2007 - 00:01 Hlusta aðallega á hljóðfæratónlist, klassíska, svo ekki vera feimin við að mæla með ofurteknískum diskum…

Ultima (4 álit)

í Skák og bridds fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Teflir einhver hér Ultima?

Standandi kona (17 álit)

í Myndlist fyrir 16 árum, 9 mánuðum
eftir Alberto Giacometti (1901-1966).

Gleðilegan 05/06/07 ! (46 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Gleðilegan 567 öllsömul!

0.999... = 111 ! -_- (23 álit)

í Vísindi fyrir 16 árum, 11 mánuðum
X = 0.999... 1000X = 999.999... 1000X - X = 999 9X = 999 X = 111 0.999... = 111 Þetta er ætlað sem mótsvar við þræðinum fyrir neðan og til að sýna framá hversu mikinn þvætting er hægt að leiða út ef 10X - X = 9, en 10X - x er auðvitað 8,99…91 Það segir sig sjálft að svo lengi sem X=X er X með einum fleiri aukastaf en 10X, tveimur fleiri en 100X o.s.f.v. Sannanirnar með almennu brotunum eru hins vegar haldbærari. Bætt við 13. maí 2007 - 19:07 Æi shit, þessi þráður er rusl, eyða takk.

Character progression (18 álit)

í Spunaspil fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Afsakið enskan titilinn, ég ætlaði að þýða hann en það kom þannig út að enginn hefði vitað hvað ég talaði um… Mig langar til að fá álit ykkar á hvort persónuþróun (s.s. character progression, að láta rönk í skill, fá feat, o.s.f.v.) í sögu (campaigni) eigi að vera háð því hvað persónan fékk “XP-ið” sitt fyrir. Á spilari að geta sett sína “skill points” þar sem hann vill og valið þau “feat” og “trait” sem hann vill, eða jafnvel bara farið upp um “level” í því “classi” sem hann mögulega vill?...

Til stærðfræðinörda (31 álit)

í Vísindi fyrir 17 árum
Hvernig hugsið þið um tvinntölur? Það má náttúrulega ekki tákna eðlisstærðir með þeim en svona þegar þið reiknið, hvernig sjáið þið þetta fyrir ykkur? Eða er þetta tóm handavinna?

Algjört madness (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum
http://www.youtube.com/watch?v=SVMiHC2Bj6k Ég held að til að þetta hafi þurft að ganga upp hafi hver og einn þurft að vera ótrúlega góður. Bætt við 28. apríl 2007 - 21:58 .til að þetta hafi getað gengið upp…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok