Sælinú. Um daginn annar af hörðu diskunum sem ég var með í RAID-uppsetningu á borðvélinni minni. Nú er ég búinn að kaupa nýjan 1TB disk sem ég hugðist nota í staðinn - planið var sum sé að setja Windows 7 fremst á gamla heilbrigða diskinn, og nota nýja diskinn undir gögn. Ég er búinn að setja nýja diskinn í, ekkert vandamál með það. Þegar ég set Win7 (32bita) install diskinn í og reyni að installa (vel Custom) sér hún ekki gamla diskinn, bara þennan nýja. Ég er búinn að reyna að fikta í BIOSinum en ég veit ekki nógu vel hvað ég á að vera að gera, svo það getur verið að einhver stilling þar sé vitlaus. Diskurinn sést í BIOSnum, btw.

Fyrst þetta gekk ekki nógu vel ætlaði ég að reyna að setja bara windowsið á nýja diskinn, en þá fæ ég villumeldingu: “Setup was unable to create a new system partition or locate an existing system partition.” Það er ekkert partition á honum, og ekkert búið að eiga við hann yfir höfuð. Hvað í fjandanum?

Ég er búinn að reyna að gúgla þessi vandamál, en ég finn ekkert sem virðist eiga við. Einhver sem getur leyst annað þeirra fyrir mig?

Relevant tech specs:
*Gamli diskurinn er 500GiB Samsung Spinpoint SATA2, nýji er sama nema 1TiB.
*Móðurborðið er Gigabyte GA-X38-DS4

Bætt við 1. febrúar 2010 - 18:59
Krosspóstað á Vaktina.
Peace through love, understanding and superior firepower.