Halló

Ég er í major veseni hérna. Tölvan mín skrapp frá í viðgerð í einn dag og þurfti ég því að taka flakkarann minn úr sambandi meðan á viðgerð stóð. Núna er tölvan aftur komin heim og þegar ég tengi flakkarann við tölvuna þá er nafnið á honum orðið annað og iTunes kannast ekkert við lögin í forritinu því það er komin ný slóð á lögin.

Diskurinn var (H:) en heitir núna (G:). Ég verð að geta breytt nafninu á þessu því ég vil ekki fara henda öllu útúr iTunes og setja inn uppá nýtt !