Sæl veriði.

Nú er stjórnandi Medicus uppiskroppa með spurningar; það er hlýtur að vera erfitt
og tímafrekt að finna tíu góðar spurningar aðra hverja viku eða svo.

Ég legg því til að fyrirkomulaginu verði breytt þannig að sigurvegari keppni n semji
spurningakeppni n+1, þar sem n er jákvæð heiltala. Þannig myndi álagið dreifast á
fleiri og spurningarnar yrðu líklega fjölbreyttari.

Hvað segið þið um það?

Arkímedes kveður.