Sælir Félagar.

Núna detta mér allar dauðar lýs af höfði. Ég fór með vini mínum í glæpabæ í algerri neyð af því að okkur vantaði stykki sem við fengum hvergi annarsstaðar til að geta notað lyklaborð með nýju tengi í gamalt. Á meðan við bíðum þarna í búðinni eftir afgreiðslu þá er maður þarna að kaupa sér geislaskrifara ( ábyggilega til að skrifa pornið sitt ) og kaupir eina 100 geisladiska með !!! Þá fær hann driver disk með, og hugbúnaðurinn er sko ekki í pakkningunum heldur bara venjulegur skrifaður geisladiskur sem stendur á Easy Cd Creator 5 !!! Svona gera þeir bara þvílík ómerkilegheit, ég hafði nú heyrt um svona hjá þeim en aldrei fyrr en í gær orðið vitni að öðrum eins hlut, ég átti bara ekki til orð !!!! Þetta er nú einum of að gera svona, eða hvað finnst ykkur.