Löng saga um leiðinda mál með fartölvu. Ekki hjálpuðu piltarnir í Start.is mikið.

Í byrjun á haust önn 2005 var ég að byrja í framhaldsskóla. Margir höfðu bent mér á að það væri mjög þægilegt að skippa öllum glósubókum og hafa bara tölvuna til að glósa, svo væri hún bara afþreying í götum.

Nú var ég í smá klípu…
Ég var búinn að vera að spila FPS leiki online í tvö ár á Nvidia Mx440 skjákorti, 512 mb ram og einhverjum 1.8 ghz (ca, man ekki, fór ekki yfir 2 ghz). Það var tölva á 80 þús kall úr Elko. Hún nýttist vel og ótrúlegt hvað var hægt að nauðga þessu Mx korti. En ekki var það lengi að verða úrelt. Ég spilaði Battlefield Vietnam frá upphafi til enda í verstu mögulegu grafík og öllum vandamálum sem manni gat dottið í hug. Ofan á alt hafði ég aldrei yfir meiru plássi að ráða en 80 gb.

Síðasta sumar tókst mér að safna vel upp fyrir tölvu en nú voru hlutirnir öðruvísi.
Ég flutti í reykjavík til systir minnar í pínu lítið herbergi til að stunda nám á tölvubraut í Iðnskólanum í Reykjavík og fór heim í Hveragerði um helgar.

Fartölva var farinn að virka á mann sem eina lausnin. Vandamálið var að finna eitthvað nógu öflugt svo ég væri ekki að eyða pening í vél sem mundi ekki skila mér neitt meira en gamla draslið.

Ég fer og leita í öllum helstu verslunum á höfuðborgarsvæðinu og enda í Start. Þar rekst ég á þennan ágætlega útlýtandi lappa sem sló amk öllu öðru sem ég hafði rekið augun í. Svo útskýri ég hvernig málin standa fyrir þessum fína starfsmanni og hann segir mér að þessi tölva sé ekkert öðru vísi en borðtölva með sömu specs (ég vissi náttúrulega ekkert um lappa).
Svo var þetta Asus lappi sem hann útskýrir að sé með þeim betri sem maður fær. Hann var reyndar ekki með sýningareintak og þurfti bara að pannta hann.

Ég kaupi þessa tölvu og allt í einu er ég kominn með einhvern fínasta lappa, fyrir utan það að hann var algjört flykki. En Start sögðu að þeir hefðu ekki vitað um þyngd hanns, en gætu staðfest að hann væri fínn í skólann (pff…).
Svo ofan á allt fæ ég tösku með þessu sem lappinn passar ekki í. Hún tók lappa með 15“ skjá en þessi var 15.4”. Ég skila ehnni og þarf að borga mismuninn upp í aðra fínni tösku, var reyndar ekkert voða fúll yfir því.

Svo fer ég að nota lappan og kemst að því að diskadrifið er gallað. Frekar slæmt þegar mig var farið að langa að kíkja á server í Battlefield 2.
Ég fer með lappann til þeirra og þeir segjast þurfa að sérpanta nýtt drif, sem var btw “out of stock” úti, svo ég þarf að bíða og bíða. What do you know. Skjálfti 3 | 05 rennur upp og ég er skráður sem leader með lið í Call of Duty. Ég fer og segi þeim í Start frá stöðuni og þeir láta mig fá utanáliggjandi drif til að noita yfir skjálfta. Svo fer ég að spila, og hvað haldið þið að gerist nú? Sjákortið er gallað og CoD veður í texture problems. Ég neyddist til að spila á þessum skjálfta í Safe Mode til að fá sem fæst textur problems, en var þó ekki laus við þau. Best víst að taka það fram að ég var búinn að uppgötva þessi texture problems fyrir Skjálfta og láta þá vita, þeir sögðust ekkert geta gert á næstuni.

Nú fer ég frekar fúll upp í Start og útskýri að ég vilji bara fá nýtt eintak, eða jafnvel aðra tölvu. Þeir taka þessa Asus vél af síðuni sinni og taka inn Fujitsu Siemens Amilo M1425 velina, sem var að öllu leyti sambærileg hvað specs varðar. Hún var jafnvel léttari. Á þessum tímapunkti var ég samt kominn á það að ef ég ættlaði að halda í þetta lapparugl skipti þyngdin engu máli þar sem hún sæti bara á borðinu heima eins og borðtölva hvort eð er. Enginn tilgangur að hafa fartölvu í skólanum. Bækurnar kosta minna svo maður þarf ekki að passa eins upp á þær og eru meira að segja léttari. Amk í mínu tilfelli.

Þessi Amilo lappi gengur ágætlega. Mér finnst hálfpartinn eins og það hafi verið meiri kraftur í Asus lappanum ef ég ber saman BF2 í Amilo við þær örfáu mínútur sem e´g náði að spila á hinum. Sérstaklega þar sem ég þarf að spila BF2 í öllum lægstu stillingum, og lagga ennþá smávægilega.
(Sem er einmitt á móti því sem Start sögðu við mig en þeir héldu því fram að þessi lappi réði við ALLA nýjustu leikina bara mjög vel.)

Svo gerist það að ég fer að sofa eina nóttina og er bara með lappan í gangi (auðvita tengdan rafmagni), og vakna svo og tek eftir mér til mikils hrylluings að bæði USB tengda lyklaborðið mitt og Razer músin mín virkuðu ekki. Virkuðu bara ekki USB tengin lengur.
Ég fer með tölvuna til þeirra og þeir halda því fram að það hafi komið skammhlaup í USB tengjunum og spurja hvort ég hafi mikið verið að taa úr sambandi og setja aftur í þau. Ég svaraði bara f sannleika neitandi. Þeir vissu ekkert hvað hafði skeð og enduðu með að flytja HDD úr lappanum mínum yfir í annan svona lappa. (Ég sá reyndar að þetta var sýningar eintakið sem þeir settu HDD minn í en það sást ekki á honum svo ég nennti ekki að fara að rífa mig að ástæðulausu.

Tvisvar búinn að þurfa að skila vél til þeirra.

Núna langar mig alveg hræðilega að skila þessum enn og aftur. Ég er kannski svolítið seinn í því en ég hef ágætan lista yfir hluti sem hafa plagað mig.

*Skjárinn verður alveg svartur og lýtur út eins og þegar tölvan er að starta sér, þegar allt þetta “dos- look-a-like” dæmi er, nema ekkert kemur. Bara gamla “góða” error hljóðið“. Ég neyðist til að halda inni power takkanum til að drepa á honum. (Kemur ekki oft fyrir, kannski 1x - 2x í mánuði, virðist ekki skipta neinu máli hvað ég er að gera.)

*Leikir á gömlu Quake 3 vélini hafa allir sama vandamálið. Þegar ég er í Full screen get ég ekki stillt brightness. Verð að setja Window mode sem pirrar mig svakalega. Saa vandamál er í Call of Duty 2 (CoD1 var á Quake3 vélinni, þetta er samt ný vél). Þar get ég ekki einu sinni sett í window mode. Leikurinn er oft óþægilega dökkur og hef ég lent í slæmum málum þegar ég hef verið að keppa (deildarleiki even) og ekki séð neitt í myrkrinu.

*Half-Life 2 virkaði vel í medium gæðum á Mx440 skjákortinu gamla. Á þessu Radeon 9700 128 mb skjákorti, 1 gb ram og 1.8 ghz Intel örra þá laggar leikurinn í ölli low. Svo þegar ég reyni að starta CS: Source, þá koma bara einhver tvö mismunandi error msg sem e´g skil ekkert í og leikurinn slekkur á sér.

*Margir örlítið eldri leikir hafa ekki virkað að sökum ”Driver error" fyrr en ég patcha leikina. T.d. Championship Manager 01-02

*Ég fæ í sumum leikjum (Allt á Steam) skilaboð um að driverinn minn sé uout of date og mér bent á ATi síðuna. Þeir segjast ekki styðja þessa tegund af fartölvum og segja mér að fara á síðu framæeiðandans. Ég geri það og ég er þá bara með Nýjasta (og þann eina) driver sem þeir hafa.


Mér var sagt að þessi tölva mundi höndla svo mikið meira en hún getur, en allir þessir errorar og endalausu gallar. Ég er kominn með upp í kok.

Hef ég ástæðu til að skila tölvuni? Er ég of seinn? Ég ætti ekki að vera það þar sem hún er í 2 ára ábyrgð.