Jæja

Ég er búinn að vera að bíða eftir grein eins og þessari.

Þegar UT2003 kom út fyrir rúmum 2-3 vikum þá fór sleiv að setja upp servera fyrir okkur. Allir urðu ánægðir og glaðir yfir því að það var einhver þarna úti sem man eftir okkur. :Þ

Hann kom þessu á stað og skilið gott klapp á bakið fyrir það.
En annað kom svo upp á bátinn. Þegar menn voru farnir að spila enn meira og enn fleiri fóru þeir að taka eftir einhverjum ping vandræðum. Þ.e.a.s menn voru að pinga í 150-300 í “stat net” (sem er hægt að skrifa í console í UT2 og sýnir allt net samband eða eitthvað þar á meðal pingið).
Þá var farið að kanna hvort eitthvað gæti verið að servernum,leiknum,tölvunni eða bara tengingunni hjá sér. En svo voru æ fleirri sem fóru að pinga svona hátt og komust nokkrir að því að 2 Half-life serverar eru á skjalfta 16 þar sem UT2 CTF serverinn er á og einn eða tveir quake serverar. Sem er frekar mikið finnst flestum. UT2003 þarf góða vél og tengingu sem kannski sumir adminar hafa ekki vitað.

Allavega er góðum server lýst svona:

NT eða Linux kerfi,1400 mhz og allavega 512+ ram og náttúrulega góða tengingu…
(leiðréttið mig ef ég hef ekki rétt með mér)

Við ut-arar erum frekar óánægðir með þetta hvað það er mikið lagg á serverum og eiginlega bara óspilanlegt.
Við vorum þó mjög ánægðir með að adminar komu strax upp serverum. En hafa ekki gert neitt meir.

Eftir að menn fóru að fatta að serverarnir lögguðu en þeir ekki var hætt að spila. Og nú er enginn að spila því þeir eru svo óánægðir. Við erum þó ekki að segja að adminar söcki og eru ekki að gera sitt. Bara að þið getið komið á framfæri einhverjum server fréttum eða fleira. Bara svo við vitum hvað sé í GANGI! Það væri vel þegið og líka það að hvort þið getið ekki tekið út UT1 servera i bili og sett UT2003 á þá. Bara svo marr geti spilað. Því annars mun enginn spila þetta og þessi leikur verður ekki að neinu.
Svo nenniði ekki að gera okkur þennan greiða og tala við okkur og segja okkur hvað við getum gert til að þið farið að koma með allmennilega servera fyrir okkur til að geta leikið okkur á.

ps. Þetta er ekki bara svar frá mér,heldur tók ég að mér að skrifa grein til ykkar fyrir hönd flestra UT gutta. :D

Vona að þið svarið okkur !

Kveðja ~H2O~SmeLkuR~