Bootleggers er netleikur, en ekki venjulegur netleikur þar sem hann er ekki eins og EVE, þ.e. að þú þarft ekki að hafa hann uppsettann í tölvunni, eða eins og leikirnir á Yahoo, þ.e. að hann er ekki Flash eða Java leikur. Leikurinn er beinlínis ein heimasíða, www.bootleggers.us, settur upp með PHP og html.



Þetta er mafíuleikur þar sem maður byrjar sem Scum og vinnur sig síðan upp. Þegar þú ert Scum og Pee Wee er ekki borin nein virðing fyrir þér. Þér er hótað, þú ert drepinn eða hvað sem er, nánast. Þegar þú ert kominn uppí Thug ertu ekki lengur “noob” og getur tekið þátt í OC (fjalla um neðar). Svo hækkarðu alltaf í virðingarstiganum.

RANKS:

Scum
Pee Wee
Thug
Gangster
Hitman
Assassin
Boss
Respectable Boss
Godfather
Legendary Godfather
Don
Respectable Don
Legendary Don



Þú aflar þér peninga með nokkrum mismunandi leiðum, með því að: Stela bílum, ræna búðir og fleira, þú getur jafnvel orðið “Pro Jailbuster” og grætt á því með því að fólk borgi þér fyrir að “bösta” sig úr fangelsinu og með OC (Organized Crime) en græðir þú mest á því síðastnefnda.

WEALTH

$0 - $49,999 Food Stamps Applicant
$50,000 - $499,999 Lower Class
$500,000 - $999,999 Respectable Man
$1,000,000 - $2,499,999 Middle Class
$2,500,000 - $4,999,999 Wealthy
$5,000,000 - $9,999,999 Upper Class
$10,000,000 - $24,999,999 Rich
$25,000,000 - $49,999,999 Very Rich
$50,000,000 - $99,999,999 Dangerously Rich
$100,000,000+ - X Notoriously Rich

Því ríkari og því hærra settur sem þú ert, því meira virðing er borin fyrir þér. En fyrir peningana getur þú keypt “Verndunar myndir”, og ýmsar myndir í prófílinn þinn, en það borgar sig að hafa einhverja vini bak við sig sem hefna þín ef þú ert drepinn, þú getur keypt vörn og byssu, þú getur látið “bounty” á fólk, þú verður að hafa pening til að taka þátt í OC. Peningurinn stjórnar beinlínis öllu!



OC eða Organized Crime er langstærsti peningagjafinn en það virkar þannig að þú skipuleggur rán á banka og færð fyrir það hátt í 900.000 dollara. Þú þarft menn með þér í að gera OC og þarft að borga þeim sinn hlut í ráninu, því þeir leggja fram sinn hlut með því að kaupa byssur, bíla, sprengiefni og fleira til að glæpurinn heppnist vel. Þarna er önnur ástæða til að hafa vini sína bak við sig því það getur verið gott að hafa skipulagt OC-lið.



Ég vona að ég hafi gert leiknum góð skil og lýst honum þannig að hann fái fleiri Íslendinga til að spila hann en þessi leikur er hreint út sagt magnaður!

Þegar þú ert Scum og Pee Wee er mjög fátt sem þú getur gert, þú ert að gera það sama aftur og aftur til að rankast upp en það tekur ekki langan tíma, þú getur komist uppí Thug á einum degi kíkir þú reglulega í leikinn, en frábært er að hafa hann í gangi á meðan þú ert að vinna eða í skólanum því það liggur ekkert á að spila hann. Þú getur rænt bíl á 4 mínútna fresti og OC á 12 tíma fresti þannig að þú þarft ekki að vera alltaf í honum.

Ég persónulega er orðinn Boss eftir 2 vikna spilun og heiti hughefner í leiknum, endilega hafið samband í honum ef þið þurfið hjálp.