Ég er búin að spila þennan leik svoldið á netinu og komist að því að það er alveg geðveikt gaman. Það væri flott að fá Íslenskan server fyrir þennan leik. Allavega ef margir sýna áhuga á þessu.

Svo ég væri til í að fá svör hvernig öðrum finnst hann á netinu. Því að það er auðvitað ekki nóg að einum finnst honum skemmtilegur og búið. Þá eru auðvitað 100% líkur að það komi engin server.

Þannig að svarið þessari grein ef ykkur finnst gaman að spila hann á netinu og viljið fá Íslenskan server!

____________________________________________ _______________________Hérna ætla ég líka að segja aðeins frá leiknum fyrir þá sem ekki hafa prófað hann.

Það eru tvö mannalið, svo alien og predator. Svo eru mismunandi spilamöguleikar eins og Team deathmatch, Deathmatch, Survivor og meira. Þarf ekki að segja mikið um Deathmatch og Team deathmatch. Í Team deathmathc veluru lið og kall eins og í Deathmatch. og munutin a þessum tveimur spilamöguleikum segir sig sjálft. Í Survivor eru 2 lið, oftast notað marine (eitt af mannaliðunum) og og alien. Þá byrjar maður sem marine og bara eiginlega Deathmatch í smá stund þangað til fyrsti maðurinn deyr. Þá breytist hann í alien. Svo eiga allir að reyna að halda sér lifandi sem marine (til að fá stig). Og þegar þú ert alien áttu að reyna að drepa marineana. Þegar þú deyrð sem marine, breytist þú nefninlega í alien. Og alienar fá ekki stig og eiga þess vegna að reyna að drepa marineana til þess að enda roundið fljótt svo að hinir komist ekki mikið yfir þá (alienarnar lifna alltaf aftur við þegar þær deyja).

Svo nenni ég ekki að segja frá hinum spilamöguleikunum :D